Jólahlaðborð aldarinnar
Múlakaffi og hljómsveitin Bandmenn hafa ákveðið að halda jólahlaðborð aldarinnar í nýja veislusalnum í Vör á aðventunni 2026. Um er að ræða 6 skipti og eru bókanir þegar hafnar. Öllu verður til tjaldað í veitingum, skemmtun og skreytingum og því fullkomin skemmtun fyrir hópa af öllum stærðum og gerðum.
Bókaðu þinn viðburð í tæka tíð
Veislusalurinn í Vör opnar haustið 2026 og verður opinn frá október til mars ár hvert. Landsliðskokkar Múlakaffis ásamt þrautreyndu teymi þjóna og veislustarfsfólks munu þar töfra fram veislur af öllum stærðum og gerðum með áherslu á gæði og framúrskarandi þjónustu. Bókanir eru í fullum gangi og eru áhugasamir hvattir til að senda fyrirspurn á mulakaffi@mulakaffi.is.