Veisluþjónusta

Múlakaffi · Frá árinu 1962

Veisluþjónusta

Sérhver veisla á sér sögu

Hvert sem tilefnið er þá höfum við aðstöðuna, veitingarnar og veisluþjónustuna sem hentar. Segðu okkur hvernig þú vilt hafa þína veislu og við töfrum hana fram fyrir þig. Við sjáum um allt saman og þú getur skemmt þér áhyggjulaus.

Sjáland

01

Við sjávarsíðuna í Garðabæ

Sjáland

Veislusalur við sjávarsíðuna

Einn rómaðasti veislu- og viðburðastaður landsins, Sjáland í Garðabæ, hefur opnað á ný. Staðurinn stendur við sjávarsíðuna og hefur lengi verið vinsæll fyrir brúðkaup, afmælisveislur og árshátíðir.

Skoða meira
Veislusalurinn Vör

02

Viðeyjarsund

Veislusalurinn Vör

Veislusalur við Viðeyjarsund

Stórglæsilegur nýr veislusalur við Viðeyjarsund sem hentar fullkomlega fyrir sitjandi veislur með allt að 900 gestum og standandi veislur með allt að 1500 manns.

Skoða meira
RÓÓT

03

Turninn, Katrínartúni 2, Höfðatorgi

RÓÓT

Gut happy

RÓÓT er hádegisstaður Múlakaffis í glerskálanum í Turninum á Höfðatorgi. Þar er boðið upp á bragðgóða og holla næringu í jafnvægi fyrir líkama og sál, alla virka daga.

Heimsækja rootfood.is
Ferðaþjónusta

04

Ferðaþjónusta

Veisla í íslenskri náttúru

Veisla í íslenskri náttúru er viðburður sem hrífur öll skynfærin. Við getum látið drauminn um veislu í íslenskri náttúru rætast enda höfum við haldið veislur á fjöllum, ofan í hellum, úti á sjó, á litlum eyjum og úti í skógi svo eitthvað sé nefnt. Möguleikarnir eru ótakmarkaðir en í öllum tilfellum er um að ræða viðburð sem er ógleymanleg og draumkennd upplifun.

Skoða matseðla ferðaeldhússins
Smáréttir að eigin vali

05

Smáréttir að eigin vali

Smurbrauð og smáréttir

Smurbrauðið í Múlakaffi verður bara vinsælla með hverju árinu. Við útbúum allt samdægurs. Hér er hægt að skoða smurbrauðið og aðra vinsæla smárétti sem hægt er að panta með þriggja sólarhringa fyrirvara.

Pantaðu hér

Njótum augnabliksins saman

Skipuleggjum veisluna saman

Hafðu samband og við hjálpum þér að velja sal, matseðil og þjónustu sem hentar tilefninu.

Senda fyrirspurn

Við sérhæfum okkur í ferskum og ljúffengum veitingum fyrir viðburði og fyrirtæki um allt Ísland.

Þjónusta
Hafa Samband
Hallarmúla 1, 108 Reykjavík
553 7737mulakaffi@mulakaffi.is
Mán–Fös: 8:00–17:00
© 2024 Múlakaffi. Öll réttindi áskilin.