Við förum hvert á land sem er

Ferðaeldhúsið

Við förum hvert á land sem er

Ef þangað er fært, þá eldum við þar.

Ógleymanleg og draumkennd upplifun

Veisla í íslenskri náttúru er viðburður sem hrífur öll skynfærin. Við getum látið drauminn um veislu í íslenskri náttúru rætast enda höfum við haldið veislur á fjöllum, ofan í hellum, úti á sjó, á litlum eyjum og úti í skógi svo eitthvað sé nefnt.

Möguleikarnir eru ótakmarkaðir en í öllum tilfellum er um að ræða viðburð sem er ógleymanleg og draumkennd upplifun.

Úr ferðabók eldhússins

Nokkrir staðir af mörgum

Þetta er ekki upptalning heldur sýnishorn. Hver veisla bætir nýjum stað á kortið.

Jöklaveislur

Uppi á jökli

Jöklaveislur

Hlaðborðið hlaðið úr snjó, borðbúnaðurinn borinn upp í fönnina.

Laugarvatnshellir

Ofan í helli

Laugarvatnshellir

Dúkað borð og gæruskinn í hellisskútanum.

Haukadalsskógur

Inni í skógi

Haukadalsskógur

Langborð milli trjánna og gærur á bekkjunum.

Þórsmörk

Milli fjalla

Þórsmörk

Hlaðborð í skálanum með Mörkina allan hringinn.

Hjörleifshöfði

Undir hömrunum

Hjörleifshöfði

Borðað í hellismunnanum, svartur sandur á alla vegu.

Snæfellsnes

Við flæðarmálið

Snæfellsnes

Veisluborð í fjörunni með hafið sem bakvegg.

…svo eitthvað sé nefnt

Segðu okkur hvert ferðinni er heitið og ferðaeldhúsið kemur.

Nefna staðinn

Við sérhæfum okkur í ferskum og ljúffengum veitingum fyrir viðburði og fyrirtæki um allt Ísland.

Þjónusta
Hafa Samband
Hallarmúla 1, 108 Reykjavík
553 7737mulakaffi@mulakaffi.is
Mán–Fös: 8:00–17:00
© 2024 Múlakaffi. Öll réttindi áskilin.